KVENNABLAÐIÐ

Ný laseraðgerð breytir brúnum augum í blá á aðeins 20 sekúndum

Blá augu hafa löngum þótt eftirsóknarverð, enda aðeins um 17% mannkyns með þann augnlit. Fólk hefur lengi reynt að breyta auglit sínum með lituðum linsum eða með lithimnuaðgerð. Það mun þó taka breytingum eftir að ný aðferð kom upp á yfirborðið sem bandaríska fyrirtækið Stroma Medical fann upp.

Auglýsing

Aðferðin fjarlægir melanínið eða sortuefnið sem einnig er að finna í hár og húð, af yfirborði lithimnunnar. Þannig kemst ljós inn og dreifist í uppistöðuvefinn sem má finna í ljósum augnlit.

„Við byggjum á því að undir hverju brúnu auga er blátt auga,“ segir Dr. Gregg Homer í viðtali við CNN, árið 2015, sem segir að það er ekkert blátt í auganu. „Það eina sem aðskilur blá og brún augu er afar þunn lithimna á yfirborðinu. Ef þú tekur hana í burtu kemst ljós í uppistöðuvefinn og það speglast ljós, sem er blár.“

Laseraðgerðin eyðileggur þessa þunnu lithimnu og líkaminn tekur svo við að fjarlægja hana á náttúrulegan hátt. Þrátt fyrir að aðgerðin taki aðeins 20 sekúndur eru bláu augun nokkrar vikur að koma í ljós. Nú hafa 37 einstaklingar undirgengist aðgerðina, en hún hefur ekki enn verið viðurkennd af bandarískum yfirvöldum. Er áætlað að aðgerðin komi til með að kosta um 500.000 ISK.

Auglýsing

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!