KVENNABLAÐIÐ

Ókeypis sykurlaus áskorun! Uppskrift að dásamlegum chiagrautum

Júlía Magnúsdóttir er næringar- og lífsstílsráðgjafi, heilsumarkþjálfi og hráfæðiskokkur sem hefur síðustu ár hjálpað einstaklingum að auka orku sína og vellíðan og öðlast sátt í eigin skinni með breyttum lífsstíl undir fyrirtæki sínu Lifðu til fulls.

Júlía breytti sjálf mataræði sínu fyrir 6 árum eftir en þá glímdi hún m.a við irðuólgu (e. IBS meltingarvandamál), fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS), liðverkji, svefnerfiðleika og latan skjaldkirtil sem fylgdi gríðarlegt orkuleysi.

cah5

Að taka út sykurinn spilaði stórt hlutverk í breytingunni á líðan Júlíu og fann hún stóra breytingu á orku, svefni og húð. Heldur hún því reglulega ókeypis 14 daga sykurlausa áskorun, nú er seinni vikan í áskorun hafin en enn hægt að skrá sig til þess að fá ókeypis uppskriftir, innkaupalista og fróðleik – 

Auglýsing

Chiagrautur með himneskum Chai kókosrjóma

Chai kókosrjómi:

1 dós (eða 1 1/2 bolli) kókosmjólk

1/4 tsk kanil

1/4 tsk malaðar kardimommur

1/4 tsk engiferduft

1/2 tsk rósapipar, malaður

1/2 tsk vanilluduft eða dropar

4-6 dropar stevia

salt

1 þroskaður banani, stappaður

chai

Chiagrautur með banana:

1/3 bolli chia fræ

1 dós (eða 1 1/2 bolli) kókosmjólk

1/2 bolli vatn (eða meira, val)

1 þroskaður banani

1/2 tsk vanilludropar

2-4 dropar stevia

Súkkulaðikúlur:

1 bolli kínóa pops

4 msk kókosolía, brædd

1 msk kakó

6 dropar stevia (venjuleg eða með súkkulaðibragði)

1 tsk kókospálmanektar (val)

1 tsk pollen (val)

vanilla

Auglýsing

Til að skreyta:

Súkkulaðikúlur

Chai kryddaðar pecanhnetur frá sykurlausri áskorun

Jarðaber

Banani

1.Setjið öll hráefni í chai rjómann og vinnið í blandara þar til silkimjúkt. Geymið til hliðar í kæli.

Útbúið Chiagraut með því að vinna öll hráefni nema chia fræin í blandara. Hrærið varlega chia fræin samanvið án þess að vinna of mikið í blandaranum og geymið í kæli í 30 mín (eða lengur) svo úr verði þykkur chiagraut.

2. Fyrir súkkulaðikúlur: Hitið ofninn á 170 gráður. Hrærið öllu vel saman í skál. Smakkið og bætið við hráum kókospálmanektar ef þið viljið hafa blönduna sætari, annars má sleppa. Bakið í 10-15 mín, þar til stökkt, eða setjið í þurrkuofn í 12 klst.

3. Sameinið chiagrautin með því að hella chai rjómanum í tvö glös c.a 1/3 glasins, þar ofaná bananastappa eða banana sneiðar, fyllið glasið svo með chia- og bananagrautnum og skreytið með súkkulaðikúlum, Chai kryddaðuðum pecanhnetur og jarðaberjum. Njótið strax!

cha2

Hollráð:

Útbúið chiagrautin og geymið í kæli í allt að 3-5 dögum, sleppið þá ferskri bananastöppu og jarðaberjum. Grauturinn gefur fljótlega orku og dásamlegur einn og sér með chai rjómanum.

Chai krydd

Chai kryddin í uppskriftinni (ólíkt chai te) er krydd sem þú trúlega átt í kryddskápnum á þessum tíma árs, en þau eru mikið notuð í piparkökubaksturinn. Chai kryddin eru blanda af kanil, kardimommum, negul, engifer, piparkornum og vanillu. Kryddjurtir eins og þessar geta seðjað sykurlöngun sem og hlýja kroppinn.

Chia fræ

Chia fræ hjálpa til við að stjórna kolvetnaupptöku líkamans, sem jafnar blóðsykur og getur dragið úr sykurlöngun. Einnig eru fræin einstaklega rík af próteini og omega 3 fitusýrum frá plönturíkinu!

Kókosmjólk

Kókosmjólk bætir meltingu og getur dregið úr bólgum í meltingarfærum. Kókosmjólkin er einnig sérlega fiturík, en að neyta hollrar fitu er eitt af mínum ráðum við að temja sykurlöngun yfir daginn.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!