KVENNABLAÐIÐ

Ashton Kutcher íhugaði sjálfsvíg til að bjarga tvíburabróður sínum

Sjáðu myndirnar! Vissir þú að leikarinn Ashton Kutcher á tvíburabróður? Hann heitir Michael Kutcher og eru þeir tvíeggja og 38 ára gamlir. Ashton var þyngri en Michael þegar þeir fæddust og vegna taugaskemmda í fæðingu er Michael með heilaskaða. Ashton hefur sagt að hann hataði að sjá elsku bróður sinn eiga við erfiðleika að stríða varðandi sjón, tal og fínhreyfingar: „Ég vildi ekki koma heim og fá slæmar fréttir um Michael…svo ég hélt sjálfum mér uppteknum og vildi ekki finna til,“ segir Ashton um uppvaxtarár sín.

Auglýsing
ash 2
Bræðurnir Ashton og Michael Mutcher

Þegar ljóst varð að Michael þyrfti að fá nýtt hjarta sagði Ashton hafa íhugað sjálfsvíg til að bjarga bróður sínum. Hann stóð úti á svölum og íhugaði að kasta sér niður af þeim þegar faðir hans kom að honum og spurði hvað hann væri að hugsa. Ashton sagði honum það og pabbi hans sagði: „Þú getur ekki gert það,“ og í sömu andrá fengu þeir fréttir frá læknunum sem sögðu: „Við þurfum að undirbúa aðgerðina. Kona dó í umferðarslysi í Flórída og það er hjarta handa Michael á leiðinni.“

Michael og kona hans Katya, þau giftu sig árið 2014
Michael og kona hans Katya, þau giftu sig árið 2014

Gaman er frá því að segja að Michael er á batavegi og er sérstakur talsmaður samtaka fólks með heilaskemmdir. 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!