KVENNABLAÐIÐ

„Kynþokkafyllsti fangi í heimi“ snýr lífi sínu við

Þökk sé netinu varð glæpamaðurinn Jeremy Meeks stjarna á einni nóttu eftir að fangamyndin af honum fór á flug og fólk stóð á öndinni yfir fegurð hans. Síðan þá hefur hann sloppið úr fangelsinu og þessi kynþokkafulli, 32 ára gaur hefur nú snúið lífi sínu við og er að þéna góðar summur á fyrirsætustörfum.

Auglýsing

Myndirnar sýna hann fyrir framan hús, sem ekki getur kallast annað en höll og fyrir framan Maserati sem er ekki ódýrasti bíll í heimi. Hann segir við myndirnar: „Gott að vera heima“ og „Guð er góður“

Myndin sem gerði allt vitlaust á sínum tíma
Myndin sem gerði allt vitlaust á sínum tíma

Sýnir hann líka hamingjusamar stundir með fjölskyldu sinni. Hann á tvo syni sem hann kallar „mini-me“ og með maka sínum þar sem hann fagnar 8 ára sambandsafmæli.

Batnandi mönnum er best að lifa, ekki satt?

Með sonum sínum tveimur
Með sonum sínum tveimur
Auglýsing

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!