KVENNABLAÐIÐ

Uppskrift: Letilegt grænmetislasagna

Sigurveig Káradóttir skrifar: Hugsanlega letilegasta lasagna í heimi. Og óskaplega fátt til í ísskápnum – en þá er oft skemmtilegast að elda. Ég held alveg algjörlega að það sé búðarferði á döfinni á næstunni en þetta varð niðurstaðan í kvöld!

Allt í einu langaði mig í lasagna þar sem ég vissi af þessu góða grænmeti í ískápnum;)

las3

Um það bil sama blanda af grænmeti og ég var með um daginn – eggaldin, kúrbítur, paprikur og laukur. Þetta lenti saman í ofni með smá ólífuolíu og sjávarsalti og mallaði þar í tæpan klukktíma. Síðan datt dós af arrabiata sósu í fatið, smá oregano, smá sætt paprikukrydd og síðan var hrært. Og til að spara uppvaskið enn frekar (það er alltaf kostur) var sama fatið og grænmetið var bakað í notað.

Helmingurinn af “gumsinu” lenti í skál meðan þessu var raðað saman.

Smá “gums”, lag af lasagna-plötum, meira gums,fleiri lasagnaplötur og loks ofaná allt saman mjög furðuleg sósa sem samanstóð af einni dós af sýrðum rjóma, smá slettu af mjólk og smá slettu af pestó. Parmesan yfir og oregano og aftur inn í ofn.

Það er fullt af góðum uppskriftum af grænmetislasagna á síðunni og hér bætist ein í safnið. Eldavélin er líka í einhverju ólagi þessa dagana, þannig að ofninn er mikið notaður! Fer alveg að komast í að láta kíkja á það en sem betur fer er ýmislegt hægt að malla án þess að allar hellur virki.

Verði ykkur að góðu!

las1

makk

Sigurveig er landsþekktur sælkeri og heldur bæði út bloggi ásamt því að reka Matarkistuna