KVENNABLAÐIÐ

Kanye West kominn heim eftir níu daga spítalavist

Rapparinn Kanye West hefur verið undanfarna níu daga á spítala eins og Sykur hefur greint frá. Hann var lagður inn vegna ofálags og ofreynslu. Nú hafa bæði CNN og Los Angeles Times sagt að Kanye sé farinn heim af spítalanum. People Magazine sagði að hann væri farinn heim að hvílast.“ Talskona Kim Kardashian vildi ekkert gefa upp.

Kanye sem er 39 ára gamall var lagður inn á Resnick Neuropsychiatric spítalann við háskólann í Kaliforníu. Fékk lögreglan kall/beiðni um hjálp og var Kanye í mikilla andlegri kreppu. Eftir ránið á Kim, konu hans hafi hann þurft að endurmeta öryggisgæslu gagnvart sér og fjölskyldunni. Einnig eru níu ár síðan móðir hans dó, og hefur hann aldrei gert upp missinn samkvæmt gulu pressunni.

Kim hefur verið hjá eiginmanni sínum allan sólarhringinn og hafa tökur á raunveruleikaþættinum Keeping Up with the Kardashians ekki verið frestað.

Auglýsing

Kendall Jenner var spurð út í mág sinn Kanye og hún sagði að allir væru mjög skilningsríkir og þau hefðu fengið mikinn stuðning: „Að sjálfsögðu verður í lagi með hann. Það er í lagi með alla, við erum bara að biðja.“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!