KVENNABLAÐIÐ

Kanye versnar og kemur ekki heim um þakkargjörðarhelgina

Fyrr í vikunni fór rapparinn Kanye West á spítala vegna ofálags eins og Sykur greindi frá. Öllum tónleikum rapparans hefur verið aflýst og samkvæmt nýjustu fregnum er ástand hans talið „alvarlegt.“ Með sjúkrahússinnlögninni var farið að rannsaka hann og virðist vera sem ástand hans sé alvarlegra en áætlað var í fyrstu, það liggi mun „djúpar“ en áður var talið, samkvæmt TMZ.

Auglýsing

Fyrst var sagt frá því að hann væri svefnvana og þjáðist af ofþurrki en nú er ljóst að hann fer ekki heim í bráð. Mun hann dveljast á spítalanum UCLA Medical Centre þar til í lok næstu viku hið minsta.

Í gær fagnaði eiginkona hans, Kim Kardashian, þakkargjörðarhátíðinni með honum á spítala. Margir meðlimir fjölskyldu Kanye vildu fá hann heim og þeim fannst að hann myndi hafa gott af því en í gær kom í ljós hversu alvarlegt ástandið er.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!