KVENNABLAÐIÐ

Meghan Markle og Kate Middleton klæddust eins kjólum

Eins og Sykur greindi frá um daginn er Harry Bretaprins kominn með kærustu, Meghan Markle. Sennilega var það tilviljun en auðvitað er ekki leiðum að líkjast! Kjóllinn umræddi er frá Diane von Furstenberg og kallast Zarita. Ótrúlega flottur en Meghan var í bláum og styttri útgáfunni á meðan Kate var í svörtum og síðari.

Ekki verður annað séð að þær hafi svipaðan smekk, og getur Meghan alltaf fengið tískuráð hjá Kate þar sem hún hlýtur að teljast afar smekklegur ráðgjafi!

Harry hefur nú beðið breska fjölmiðla að róa sig í umfjöllun um nýju kærustuna þar sem þeir hafa farið offari við að grafa eitthvað upp um hana. M.a. hafa þeir fjallað um að hún sé blönduð, en faðir hennar er svartur og mamman hvít. Skiljanlega er honum ofboðið, en spurningin er hvort gula pressan í Bretlandi kunni yfir höfuð að halda að sér höndum?

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!