KVENNABLAÐIÐ

Íslensku þættirnir Fangar verða frumsýndir 1. janúar 2017: Stikla

Fyrsta stiklan úr íslensku þáttunum Fangar er komin á netið og verður að segjast eins og er að hún vekur upp mikla spennu! Skemmst er að minnast hinna margverðlaunuðu þátta Ófærðar sem voru sýndir við metáhorf síðastliðinn vetur, bæði hér heima og erlendis.

Þættirnir Fangar fjalla um Lindu sem send er í eina kvennafangelsið á landinu fyrir hrottalega árás á föður sinn en hann er í dái. Enginn veit um myrkt leyndarmál hennar sem gæti sundrað fjölskyldunni en einnig frelsað hana.

Auglýsing

Leikkonurnar og handritshöfundarnir Nína Dögg Filippusdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir eiga heiðurinn að handritinu en Ragnar Bragason leikstýrir. Þættirnir verða frumsýndir þann 1. janúar 2017 á RÚV.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!