KVENNABLAÐIÐ

Arna Ýr í Cosmopolitan: Við erum stolt af henni!

Eins og kunnugt er hætti fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir við að keppa fyrir Íslands hönd í fegurðarsamkeppninni Miss Grand International vegna þess henni var sagt að hún væri „of feit.“ Nawat Itsaragrisil stofnandi og eigandi keppninnar sagði henni að hætta að borða morgunmat, salat í hádeginu og drekka vatn þar til undankeppnin færi fram. Eins og fegurðarsamkeppnir séu ekki löngu orðin tímaskekkja þá eru þessi viðhorf það líka.

Auglýsing

Nú hefur Arna vakið heimsathygli og eitt þekktasta tískutímarit heims vakið athygli á málinu og fjallað um það af Lauru Beck sem segist „elska þessa konu!“

Yes! Love this woman!

Gerir Laura einnig grín að markmiði keppninnar sem er að dreifa gleði um allt og „stöðva stríð og ofbeldi“ – hvernig væri þá að hætta að vera ömurleg við konur út af heimskulegum hlutum eins og þyngd. Lesa má alla greinina HÉR. 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!