KVENNABLAÐIÐ

Casper Smart hélt framhjá Jennifer Lopez

Casper Smart er ekki mjög smart: Fólk hélt að þau væru að fara að gifta sig en nú er öllu lokið hjá þeim skötuhjúum. Jennifer sem er 47 ára hefur nú hent kærastanum og dansaranum Casper út þar sem hún komst að framhjáhaldi hans…og ekki í fyrsta sinn. „Hún henti honum út því hann hélt framhjá henni og allt komst upp. Það gerðist líka fyrir tveimur árum og hann lofaði að það myndi aldrei gerast aftur,“ segir ónefndur heimildarmaður. „Hann gerði það aftur og hún fékk algerlega nóg.“

Auglýsing

Nú er dansarinn á tánum að biðja hana að taka við sér aftur. Segist hann breyttur maður og fékk hann sér líka nýtt húðflúr sem segir: „You must embrace the darkness to see the light.“ (þú þarft að umvefja þig myrkri til að geta séð birtuna)

Að auki mun Casper vera afar afbrýðisamur út í vináttusamband Jlo við sinn fyrrverandi Marc Anthony eftir að þau voru í stúdíói að taka upp lag saman.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!