KVENNABLAÐIÐ

Bítlarnir og guli kafbáturinn nýjasta afurð Lego

Lego fyrirtækinu er ekkert óviðkomandi: Frá 1. nóvember næstkomandi verður hægt að fá fjórar Legofígúrur af Bítlunum og gula kafbátinn (Yellow Submarine) til að setja saman úr Legokubbum. Verkfræðingurinn Kevin Szeto hannaði þessa dásemd ásamt fígúrunum af John, Paul, Ringo og George. Lego fyrirtækið er afskaplega ánægt með afurðina og verður hún sett á sölu á næstunni. Spurningin er þó hvort yngri Legoaðdáendur þekki Bítlana? Kannski er þetta jólagjöfin fyrir mömmu og pabba (eða afa og ömmu?)

Auglýsing

lego1 lego2

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!