KVENNABLAÐIÐ

Fékk hálfgert áfall þegar hún hitti nýja yfirmann sinn…því hún hafði „matchað“ við hann á Tinder

…og já, þau höfðu skipst á myndum! Tinder er stefnumótaapp fyrir þá sem ekki vita. Írsk stúlka að nafni Laura lýsir því þegar atvinna hennar og einkalífið hittust á allsvakalegan hátt.

Laura vinnur í Debenhams og var kynnt fyrir nýja yfirmanni sínum. „Ég hugsaði: „Hvar hef ég nú séð þennan áður?““ Það var þá sem hún uppgötvaði að þau höfðu náð ágætis tengslum á Tinder, meira að segja svo vel að hann hafði sent henni myndir af djásninu.

Auglýsing

„Ég var bara í vinnunni og uppgötvaði þetta. Ég var næstum búin að gera í buxurnar!“
Svo tvítaði hún í framhaldi: „Ef þið haldið að líf ykkar sé slæmt þá fékk ég nýjan yfirmann í vinnunni í dag. Við mötchuðum á Tinder og hann sendi mér typpamyndir. RIP.“

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!