KVENNABLAÐIÐ

Myndir þú þora að gista á þessu draugahóteli?

Þetta er Hotel Shanley sem talið er svo reimt að fá önnur hótel hafa komist í hálfkvisti við það. Er það staðsett á austurströnd Bandaríkjanna í New York ríki. Þurfa gestir að skrifa undir pappíra áður en þú gistir þar (eigendurnir væntanlega að forðast lögsóknir.)

Auglýsing

Í húsinu eru 35 herbergi, falin hvelfing í kjallaranum og fullt af yfirskilvitlegri virkni. Húsið var byggt 1895 og hefur verið vettvangur alls kyns óhugnanlegra hluta: Öll þrjú börn fyrsta eiganda dóu á furðulegan hátt, dóttir hárskerans féll í brunn við húsið og lést ásamt fjölda óútskýrðra dauðdaga, manneskjur hafa horfið og nokkrir hafa verið myrtir.

boo2

Segir sagan að yfirnáttúrulegir hlutir eigi sér stað, bæði daga og nætur, sérstaklega þó í hluta hússins sem á bannárunum var notaður í vændishús. Gestir sem koma í þann hluta hússins sem kallaður var Bordello hafa sagt sig upplifa svima, andþrengsli, þyngsli og óútskýrðar geðshræringar. Þeir sem rannsaka yfirnáttúruleg fyrirbrigði segja að bæði megi sanna tilvist ýmissa anda bæði með ljósmyndum og annars konar skönnum.

Auglýsing

boo3

Ef þetta höfðar til þín getur þú bókað herbergi á Hótel Shanley. Þú getur búist við ýmsum ævintýrum á meðan dvöl þinni stendur: Ruggustólar rugga af sjálfu sér, klukkur hringja á ótrúlegustu tímum, þú getur upplifað kulda á ýmsum stöðum í húsinu, margir heyra flaut (sem er sagt tilheyra fyrrum eiganda hússins James Shanley) og börn heyrast hlæja þó engin séu. Gestir hafa séð hluti hreyfast úr stað eða liðið eins og einhver væri að fylgjast með þeim…

Spennandi!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!