KVENNABLAÐIÐ

Cara Delevingne hætt með kærustunni St Vincent

Fyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne og St Vincent eru hættar saman aðeins örfáum mánuðum eftir að Cara lýsti því yfir í öllum helstu miðlum að hún væri „sjúklega ástfangin.“ Cara og St Vincent (raunverulegt nafn hennar er Annie Clark) höfðu verið saman í eitt og hálft ár.

cara2

Auglýsing

Cara sem er 24 ára fór ekki leynt með tilfinningar sínar í garð hennar í viðtali við Vogue fyrr á árinu: „Ég er algerlega ástfangin. Áður hafði ég ekki hugmynd um hvað raunveruleg ást væri. Ég skildi ekki hvað hún gæti verið djúp. Nú skil ég að tilgangur lífsins er ástin. Hvort sem það er sjálfsást, ást þín á heiminum eða þeim sem þú elskar.“

cara1

Stórstjarnan hefur verið upptekin eins og áður sagði. Var hún iðin á samfélagsmiðlum að birta myndir og myndbrot af sjálfri sér á Burning Man hátíðinni á dögunum, kannski til að hætta að hugsa um sambandsslitin. Daginn áður en skilnaðurinn var opinber sagði Cara á einhverjum miðlinum: „Þú getur ekki lifað jákvæðu lífi með neikvæðum huga.“

cara3

Samkvæmt The Sun sagði ónefndur heimildarmaður: „Cara og Annie þykir enn vænt um hvor aðra, en að vera í sambandi sem krefst svo mikillar fjarveru var of mikið fyrir þær. Það voru brestir í sambandinu núna í ágúst þegar Annie var ekki í afmælisboðinu – í stað þess að mæta sendi hún henni mjög kuldalega kveðju á Instagram. Þær elska samt hvor aðra en þetta var ekki að ganga svona upp. Cara hefur haldið sér upptekinni með því að djamma mikið.“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!