KVENNABLAÐIÐ

Madonna fagnaði 58 ára afmæli sínu á Havana, Kúbu í gær!

Hvert flaug tíminn? Poppgyðjan Madonna er hvorki meira né minna en 58 ára! Fagnaði hún tímamótunum þann 16. ágúst á bar í Havana á Kúbu með afar trylltum dansi eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Barinn kallast La Vitrola og dansaði hún ein í nokkrar mínútur þar til dansfélaginn mætti – ekki er annað að sjá en gestir og félaginn séu að elska þetta!

Rocco, 16 ára sonur hennar, var einnig viðstaddur og dansaði hún líka við hann…á öllu hóflegri hátt þó.

Við getum ekki beðið eftir að verða 58 ára!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!