KVENNABLAÐIÐ

Kendall Jenner tjáir sig í fyrsta sinn um kynleiðréttingu Caitlyn

Kendall Jenner er á hátindi frægðar sinnar, aðeins tvítug að aldri. Hún hefur ekki langt að sækja stjörnulífið – öll hennar fjölskylda er fræg fyrir raunveruleikaþættina Keeping up with the Kardashians. Kendall verður á forsíðu septemberútgáfu Vogue og í viðtalinu upplýsir hún ýmislegt um einkalíf sitt.

Kim Kardashian segir að Kendall hafi alltaf vitað hvert hún ætlaði sér í lífinu: „Hún var mjög einbeitt í því sem hana langaði að gera. Og hún lét það gerast.“

aaaa kend vogue

Kendall segir: „Augljóslega kom frami minn á eftir systra minna – ég sá mistök þeirra allra og varaði mig á þeim.“ Einnig opnaði hún sig um föður sinn, Caitlyn Jenner og kynleiðréttinguna: „Stundum horfi ég á myndir af pabba þegar hann var maður og það gerir mig svolítið leiða, ég kemst í tilfinningalegt uppnám. Þú verður samt að horfa fram hjá því, komast yfir það, því þú ert með nýja manneskju til að elska.“

aaa kendall gras

Segist fyrirsætan svo að hún hafi lært að taka Caitlyn opnum örmum sem jákvæðu innleggi í líf hennar: „Þetta var blessun í dulargervi, ef það er ekki rangt af mér að segja það. Breytingin var mjög erfið fyrir mig. Ég var bara: „Þú kenndir mér að vera strákastelpa….ég veit þetta var erfitt tímabil en mér líður vel með það í dag. Það er ekkert skrýtið lengur.“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!