KVENNABLAÐIÐ

Rússnesk kona í sólbaði: En hvað er að?

Af hverju ratar þetta í fréttirnar? Jú, kannski af því að þessi kona fer út fyrir skynsemismörk til að fá sér smá brúnku! Konu nokkuri í rússnesku borginni Novosibirsk hefur tekist að fá nágranna sína upp á háa c-ið vegna tilrauna hennar til sólbaðs.

(Þú getur smellt á myndirnar til að sjá þær stærri)

 

sunbath

 

Auglýsing

 

Konan sem er ónafngreind býr í Kropotkin stræti í Novosibirsk. Hún nær sér í smá sól með því að hengja fætur og rass út fyrir gluggann frá 10 um morguninn til kl 13 eftir hádegi. Nágrannarnir eru uggandi því þeir hafa haft áhyggjur og hafa margoft kvartað til lögreglu. Þeir segja lögreglunni að það sé furðuleg sjón fyrir krakka á leikvelli að horfa upp á þetta.

 

sunbath2

 

Til að fá konuna til að hætta áhættuatriðum í von um brúnku hafa íbúar í nágrenninu skrifað undir undirskriftarlista til að færa lögreglunni. Það reyndist þó ekki áhrifaríkt svo þessi sólardýrkandi hefur frelsi til að sýna á sér bakhlutann – út um gluggann- eins og hún vill.

Auglýsing

sunbath3

 

Myndir sem áhorfendur hafa tekið hafa farið villt og galið um Netið en flestir hafa tjáð áhyggjur sínar um að hún detti út um gluggann frekar en að börn í nágrenninu verði fyrir óbærilegum skaða vegna þess að hafa barið hana augum. Þessi ágæta kona hefur þó sést í sólbaði ekki bara með neðri hlutann huldan heldur einnig efri hlutann.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!