KVENNABLAÐIÐ

Vilt þú geta ferðast með hundinn í strætó?

Við hvetjum alla til að taka þátt í könnunninni! Nýlega lauk sjö vikna starfi vinnuhóps um gæludýr í strætó. Strætó skipaði 14 manna hóp með fulltrúa sem gætu lagt ákvarðanatökunni lið.

Fulltrúar hópsins voru frá:

Hollvinasamtökum Strætó
Farþegaþjónustu Strætó
Trúnaðarmenn Strætó
Vagnstjórar Strætó
Þvottastöð Strætó
Kattavinafélags Íslands
Dýralæknir
Hundaræktarfélag Íslands
Asma- og ofnæmisfélags Íslands
Dýraverndunarsambandi Íslands
Félags ábyrgra hundaeigenda

Auglýsing

 

Berglind Guðbrandsdóttir, annar stjórnandi Hundasamfélagsins, mætti á fund til að kynna Hundasamfélagið fyrir hópnum og áhuga okkar fyrir því að aðstoða með upplýsingagjöf, verði verkefnið að veruleika. Einnig Mætti Guðfinna Kristinsdóttir sem varamaður á annan fund fyrir hönd Félags ábyrgra hundaeigenda.
Upplýsingum frá Norðurlöndunum var safnað saman og rætt var um þeirra reynslu af gæludýrum í almenningssamgöngum. Fundað var um hvernig best væri að útfæra tilraunaverkefnið hérlendis og niðurstaða hópsins var að samþykkja tilraunaverkefnið með 7 já, 5 nei og 2 hlutlaus. Sjórn Strætó mun hinsvegar eiga lokaorðið um hvort farið verði af stað með tilraunaverkefnið eða ekki.

 

Auglýsing

 

stræt+o2

Fjallað var um málið í fjölmiðlum í dag og tilkynnt að ákvörðun yrði tekin með haustinu.
Við viljum benda þeim einstaklingum sem vilja sjá þetta verkefni verða að veruleika, að láta stjórn Strætó vita. Stjórnin er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi.
Hægt er að senda póst á stjórn Strætó:

  • Bryndís Haraldsdóttir, Mosfellsbæ, formaður: bryndis@mos.is
  • Heiða Björg Hilmisdóttir, Reykjavík: heida.bjorg.hilmisdottir@reykjavik.is
  • Sverrir Óskarsson, Kópavogi: sverrir.oskarsson@tr.is
  • Einar Birkir Einarsson, Hafnarfirði: einarbirkir@hafnarfjordur.is
  • Sigrún Edda Jónsdóttir, Seltjarnarnesi: sigrunj@seltjarnarnes.is
  • Gunnar Valur Gíslason, Garðabæ: gunnar.valur.gislason@gardabaer.is

Einnig hefur Hundasamfélagið farið af stað með nýjan undirskriftalista þar sem hægt er að lýsa yfir stuðningi með tilraunaverkefninu.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!