KVENNABLAÐIÐ

Sarah Jessica Parker deilir fágætri mynd af tvíburadætrum sínum

Tvíburadætur leikkonunnar SJP eru orðnar sjö ára gamlar! Sarah og eiginmaður hennar leikarinn Matthew Broderick hafa verið dugleg að halda börnum sínum utan sviðsljóssins en gerði hin stolta mamma undantekningu á afmælisdeginum sem var fyrir þremur dögum á Instagram.

Skiljum við hana vel, tvær heilbrigðar og lífsglaðar stúlkur hér á ferð greinilega. Sýnir myndin að stúlkurnar hafa greinilega fatasmekk móður sinnar og Tabitha á vinstri hönd í munstruðum buxum, stótum hvítum stuttermabol og hermannajakka, á meðan systir hennar Loretta er í litríkum samfestingi og bleikri hettupeysu.

Auglýsing

„Happy birthday to our lovely, funny, dear, surprising, sparkling and beloved Loretta and Tabitha who today are 7 years old. Let the celebrations begin. X, sj,“skirfar Sarah við myndina. Til hamingju!

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!