KVENNABLAÐIÐ

Gerðu það sama og þessi gaur ef þú nærð augnsambandi við Beyoncé!

Poppdívan Beyoncé sást á NBA körfuboltaleik með eiginmanni sínum Jay Z á dögunum. Ekkert við það að athuga nema ef við pælum aðeins í fárinu sem varð varðandi framhjáhaldsfregnirnar eftir útgáfu Beyoncé á popplistaverkinu Lemonade.

Þau skemmtu sér vel
Þau skemmtu sér vel

Allavega – þau eru miklir aðdáendur NBA og voru á leiknum ásamt Steve Cespedes (þú veist ekkert hver það er – ekki við heldur reyndar.) Svo ef þú situr við hliðina á einu frægasta pari veraldar hvað gerir þú? Annaðhvort a) verður algerlega „starstruck“ og reynir að forðast þau eða B) verður eins og lítill krakki og missir þig eða…gerir það sama og Steve. Við vitum ekki alveg hvort það var meðvitað hjá honum en hann náði augnsambandi við hana og (bókstaflega) missti kjálkann á gólfið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Auglýsing

BEY3

 

Nema hvað – Bey kallaði hann yfir til sín og bað hann um að taka selfie með sér! Snillingur þessi kona! Þannig – það er í lagi að stara stundum…

...og með þessu vakti Steve athygli heimsbyggðarinnar ;)
…og með þessu vakti Steve athygli heimsbyggðarinnar ;)

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!