KVENNABLAÐIÐ

Páll Óskar býður Gumma Ben raddþjálfun!

Uppáhalds söngvari okkar Íslendinga hefur áhyggjur af rödd okkar uppáhalds íþróttafréttamanns og segir í færslu á Facebook:

 

Ég elska Gumma Ben. Fullkomlega heiðarlegur og filterslaus í hlutdrægni sinni, og ástríðufullt tilfinninga-spaghetti. Ég býð mig hér með fram til að taka Gumma Ben í raddþjálfun (ekki söngþjálfun heldur raddþjálfun) og kenna honum nokkrar upphitunar æfingar, því þjóðin má ekki missa þessa rödd. Það eru til fínar raddæfingar sem hörðustu þungarokkarar nota til að öskra í áraraðir. Vona að Gummi Ben fái þessi skilaboð, því ég er ekki að grínast.

Gummi nefnilega má alls ekki missa röddina fyrir leik Íslands og Englands á mánudaginn – það væri hræðilegt. Vonandi tekur hann boði Páls Óskars um helgina!

 

gummi ben

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!