KVENNABLAÐIÐ

Selena Gomez nýtt andlit Louis Vuitton

Söngkonan Selena Gomez er ein eftirsóttasta stjarnan í dag og er afar breytt frá því hún var „bara“ kærastan hans Bieber. Hún er þessa dagana í tónleikaferðalaginu Revival og er búin að eiga ansi mörg lög sem ratað hafa á topplista undanfarin misseri.

Hönnuðurinn Nicholas Ghesquière tók strax eftir Selenu og sagði í viðtali að þau hafi náð fljótlega afskaplega vel saman. Þau hafa unnið saman fyrir W Magazine, MET Gala og fyrstu Vogue forsíðuna hennar fyrir brasilísku útgáfuna. Stærsta verkefnið hingað til kom þó í ljós í dag, 17. júní, þegar tilkynnt var að Selena yrði andlit Nicholas fyrir m.a. Louis Vuitton sem hann hannar fyrir. Ljósmyndirnar tók enginn annar en Bruce Weber sem er einn þekktasti tískuljósmyndari í heimi.

Við höldum áfram að fylgjast með þessari flottu, rísandi stjörnu!

 

sel2

A preview of my #lvseries5 campaign starring the stunning @selenagomez pic by @bruce_weber #louisvuitton

A photo posted by ? (@nicolasghesquiere) on

When we were in the making @selenagomez @bruce_weber @voguebrasil

A photo posted by ? (@nicolasghesquiere) on

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!