KVENNABLAÐIÐ

Taylor Swift ekki lengi að finna sér nýjan gæja!

Það eru tvær vikur síðan söngkonan Taylor Swift og tónlistarmaðurinn Calvin Harris hættu saman með látum en hún virðist ekki vera í neinni alvarlegri ástarsorg, samkvæmt eOnline. Taylor hefur leitað huggunar hjá leikaranum Tom Hiddleston (sem leikur í Thor) og er Calvin ekki ánægður og finnst hún hafa svikið sig. Ónefndur heimildarmaður segir að hann hafi haft á tilfinningunni að hún væri ekki alveg heiðarleg við sig og hefði verið að hitta annan á meðan þau voru saman.

 

taylor nytt

 

Vinur Taylor hefur þó látið hafa eftir sér við E! News að hún hafi ekki átt í ástarsambandi á meðan þau voru saman. Tom og Taylor hafi hist í eftirpartýi MET Gala en þá voru þau að dansa en ekkert daður hafi verið í gangi.

Í fyrstu voru fregnirnar á þá leið að þau hafi skilið í góðu – þau væru áfram vinir. Annað hefur þó greinilega komið í ljós þó Calvin hafi tvítað að sannleikurinn hafi verið sá að sambandið hafi bara runnið sitt skeið: „Það sem stendur eftir er mikill kærleikur og virðing.“ Taylor retvítaði póstinum hans en nú virðist sem Calin hafi hent henni út af öllum síðunum sínum og eytt þessum umræddu ummælum.

Kossar og knús
Kossar og knús

 

Selfie er alltaf nauðsynleg
Selfie er alltaf nauðsynleg

 

Er þó talið að neistinn hafi kviknað á MET Gala partýinu og sáust þau eiga rómantíska stund á ströndinni á Rhode Island. Sjónarvottur segir að þau hafi verið mjög náin, faðmast og kysst hvort annað þrátt fyrir fjölda fólks á ströndinni. „Þau litu út fyrir að vera yfir sig ástfangin og sama hvað fólki fyndist um þau.“

 

Alger herramaður - breiðir jakkann sinn yfir axlirnar á Taylor
Alger herramaður – breiðir jakkann sinn yfir axlirnar á Taylor

 

Tom hefur víst verið duglegur að senda henni blóm og fallegar kveðjur þannig Taylor var ekki lengi einhleyp af þessu að dæma…

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!