KVENNABLAÐIÐ

Taylor Swift og Calvin Harris hætt saman

15 mánaða samband að baki hjá Taylor og Calvin. Calvin (sem heitir í raun Adam) er sagður hafa sagt Taylor upp. Hún hafi verið meira spennt fyrir sambandinu en hann. Samkvæmt heimildarmanni E! News er Calvin sagður hafa misst áhugann undanfarna mánuði en var að reyna að halda sambandinu gangandi. Kemur þetta fólki á óvart þar sem þau sáust síðast á Coachella hátíðinni í Kaliforníu fyrir stuttu þar sem myndir náðust af þeim að leiðast og kyssast. Þau sáust einnig í New York síðastliðna helgi en svona getur þetta verið í Hollywood…

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!