KVENNABLAÐIÐ

Miley er ólétt!

Fyrsta barnið á leiðinni! Sykur sagði frá því um daginn að Miley Cyrus og Liam Hemsworth væri jafnvel að ganga í það heilaga….getið þið hvað? Þau eiga von á barni! Aðeins örfáum mánuðum eftir að þau náðu saman á ný! Heimildarmaður segir: „Það er of snemmt að tilkynna það en Miley hefur sagt nokkrum nánum vinum sínum fréttirnar. Hún hefur verið að berjast við ógleði og hún vissi það innst inni að hún væri ólétt.“

Miley sem er 23 ára gömul hefur gengið með trúlofunarhring Liams síðan í janúar á þessu ári. Segja heimildir að hún vilji ganga inn kirkjugólfið áður en barnið fæðist. „Þetta verður sumarbrúðkaup!“ segir þessi ónefndi heimildarmaður.

Búist er þó við að brúðkaupið fari ekki fram án láta – 300 manna gestalista er vænt og kúrekaþema telst líklegt í brúðkaupinu!

Í víðri peysu til að fela bumbuna Myndir/texti Life&Style
Í víðri peysu til að fela bumbuna
Myndir/texti Life&Style

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!