KVENNABLAÐIÐ

Orlando Bloom og Selena Gomez: Sjóðheitt stefnumót

Aldrei nein lognmolla í kringum þessar Hollywoodstjörnur! Orlando Bloom (sem á að vera kærasti Katy Perry þessa dagana) mætti óvænt í eftirpartý eftir tónleika Selenu í Las Vegas. Náðust myndir af þeim í sjóðheitu keleríi á bás á hótelinu.

Með Katy þann 2. maí síðastliðinn
Með Katy þann 2. maí síðastliðinn

 

Hefur alltaf verið heitt á milli þeirra og segir sagan að í eitt skipti þegar Selena hætti með Justin Bieber og Orlando hætti með fyrirsætunni Miröndu Kerr hafi þau verið saman. Þau hafa alltaf neitað því en það virðist sem óstöðvandi neisti sé á milli þeirra. Selena er 23 ára og Orlando 39.

 

Mynd sem náðist af þeim árið 2014
Mynd sem náðist af þeim árið 2014

 

Sögusagnir um að Bieber og Selena séu að taka saman aftur eru þá sennilega ekki sannar…og hvað ætli Katy segi? Hún var á Renaissance hátíð í Kaliforníu en þau fóru saman á Met Gala hátíðina þann 2. maí…

 

framhjahald

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!