KVENNABLAÐIÐ

Whoopy Goldberg framleiðir vörur úr kannabis sem eru ætlaðar konum

Whoopi Goldberg hefur aldrei farið í launkofa með það að hún reyki gras og noti kannabis í lækningaskyni. Nú er hún í samvinnu við aðra konu Maya Elisabeth búin að stofna fyrirtæki sem sérhæfir sig í vörum unnum úr kannabisplöntunni. Vörurnar eru ætlaðar konum sérstaklega og  ætlað að lina þjáningar þeirra meðan á blæðingum stendur.

Kannabis kakó sem má leysa upp í heitri mjólk eða vatni og drekka til að ná slökun og stilla af verki.
Kannabis kakó sem má leysa upp í heitri mjólk eða vatni og drekka til að ná slökun og stilla af verki.

Fyrirtækið sem heitir Whoopi & Maya býður upp á sætindi, olíur, remedíur, áburð og jafnvel freyðibað unnið úr kannabis plöntunni, sem þær segja að hafi mjög slakandi og verkjastillandi áhrif.

Whoopi og Maya
Whoopi og Maya /Timothy White Copyright 2016

 

„Ef víma er ekki endilega það sem þú ert að sækjast eftir, þá eru vörurnar okkar sem eru hannaðar sérstaklega til að lina verki eitthvað fyrir þig,“ segir Whoopi.

Áburður unnin úr Kannabis sem linar þjáningar í baki og kvið. Notað útvortis.
Áburður unnin úr Kannabis sem linar þjáningar í baki og kvið. Notað útvortis.

„Vörurnar okkar passa í handtöskuna,“ heldur Whoopi áfram „þú getur borið áburðinn á kviðinn og neðra bakið þegar verkirnir eru sem verstir, þú getur fengið þér te eða kakó sem slær á krampana og svo lagst í slakandi bað þegar heim er komið og allt án þess að verða verklaus eins og einhver grashaus.“

soak-amber-moon
Stingdu þér ofan í slakandi bað sem slær á fyrirtíðaspennu og tíðaverki.

 

 

Whoopi hefur sjálf notað Kannabis í lækningaskyni í mörg ár en hún þjáist af höfuðverkjum og kýs það fram yfir það að éta lófafylli af verkjatöflum í viku hverri.

En afhverju er Kannabis gott gegn verkjum? Það er Maya sem situr fyrir svörum.

„Kannabis er frábært verkjalyf og þegar þú notar það útvortis þá hefur það áhrif á taugaendana í þjáðum svæðum líkamans. Kannabis er notað af mörgum sem glíma við langvinna verki með frábærum árangri.“

Hver eru virku efnin í Kannabis sem hafa áhrif á verki?

„Virka efnið CBD dregur úr bólgum og verkjum og THC er einnig verkjastillandi og saman hafa efnin góða virkni til að lina þjáningar sem fylgja blæðingum kvenna.“

69816
Til gamans: Viktoría drottning notaði víst marijuanatinktúru  þegar hún þjáðist af tíðaverkjum og krömpum sér til heilsubótar.

 

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!