KVENNABLAÐIÐ

Prince er látinn, 57 ára að aldri

Poppgoðið Prince er látinn. Ekki er vitað um dánarorsök en lögreglumenn eru nú að heimili hans í Paisley Park. Fékk lögregla hringingu í morgun, fimmtudag, og eru nú rannsakendur að athuga hvernig lát hans bar að.

 

prince

 

Paisley Park er í Minnesotaríki í Bandaríkjunum og sagði lögreglustjóri fjölmiðlum að verið væri að láta alla ættingja vita.

Prince var fæddur Prince Rogers Nelson og var lágvaxinn en „hávær“ svo að segja. Hann gaf út plöturnar Sign O’ the Times, Graffiti Bridge og The Black Album.

Verður hans alltaf minnst vegna frábærrar tónlistar og einstakra hæfileika.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!