KVENNABLAÐIÐ

Kim og Kourtney Kardashian fljúga yfir íslenska jökla í þyrlu

Kim Kardashian West var rétt í þessu að pósta mynd af sér, Kourtney og vini þeirra Jonathan Cheban um borð í þyrlu sem flýgur með þau yfir öræfi Íslands á Facebook. Óhætt er að segja að þau hafi verið ánægð með ferðina en visir.is hefur greint frá því að þau hafi bæði verið rekin upp úr potti á Hótel Rangá og tekið vel á því í ræktinni.

 

glacier

 

Þau brögðuðu einnig alíslenskar pylsur á Bæjarins bestu og fögnuðu afmæli Kourtneyjar í gær – meðfylgjandi mynd af systrunum má finna á Facebooki Kims:

hb

 

Birta Líf var svo heppin að taka „selfie“ með Kim sjálfri fyrir tveimur dögum síðan eins og við greindum frá. 

Kim póstaði svo mynd á Twitter þar sem Kanye er í einhverju furðulegu sjálflýsandi vesti (kannski til að týnast ekki) frá toppi ónefnds jökuls (sem hugsanlega, samkvæmt sérfræðingum, gæti verið Eyjafjallajökull):

kortney

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!