KVENNABLAÐIÐ

Birta Líf tók selfie með Kim Kardashian!

Birta Líf datt heldur betur í lukkupottinn í dag en hún hitti átrúnaðargoðið sitt, Kim Kardashian, í miðbæ Reykjavíkur í dag. Birta ætlaði niður í bæ með kærastanum sínum að fá sér hádegismat og svo ákvað hún að athuga hvort hún séu ekki „vinkonu sína“ sem hún vissi að væri staðsett á hótel 101.

 

kim og birta

 

„Ég tók eftir bílunum fyrir utan hótelið, stoppaði í smástund en hélt svo áfram för minni. Á leið heim ákvað ég að prófa að kíkja aftur og sá þá myndavéla „crew-ið“ fyrir Keeping up with the Kardashians og þá fer ég út. Kanye West stóð í dyragættinni og stuttu seinna labbar Kourtney út og ég næ að smella mynd af henni og síðan Kim og Kanye. Ég var í rauninni að labba við hliðina á Kim og ég spurði hana hvort ég fengi ekki eina sjálfsmynd og hún bara : „Yeah, sure!“

birta1 birta2

Birta hefur alltaf fylgst með þáttunum og fjölskyldunni: „Ég hef fylgst með þeim síðan ég veit ekki hvenærog það vita allir sem þekkja mig að hitta Kim fyrir mér er það merkilegasta sem gæti komið fyrir mig. Ég algjörlega lifi og hrærist í þessari fjölskyldu!“

(Myndirnar eru á Twittersíðu Birtu: Birta96)

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!