KVENNABLAÐIÐ

Össur hitti leikarann Richard Gere: Langar að heimsækja land og þjóð

Þingmaðurinn og fyrrum ráðherrann Össur Skarphéðinsson hitti leikarann góðkunna Richard Gere í bresku lávarðadeildinni í dag. Sagði hann leikarann hafa mikinn hug á að heimsækja land og þjóð og hefðu þeir rætt um sameiginleg hugðarefni.

Gere er hér á ferð að kynna málefni Gere Foundation. Össur var með honum á fundi og sameiginlegur vinur þeirra beggja, Fabian Hamilton í skuggaráðuneyti Jeremy Corbyn (fyrrverandi formaður Íslandsvinafélagsins) í breska þinginu leiddi þá saman í mjög skemmtilegt spjall, að sögn Össurar.

Össur segir Gere vilja heimsækja Ísland – að hann væri staðráðinn að koma hingað og sjá miðnætursól og daga án nætur. Smekkmaður!

Myndarlegir menn, ekki satt?

 

össur2

 

Flottir báðir tveir! Mynd: Facebook
Flottir báðir tveir!
Mynd: Facebook

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!