KVENNABLAÐIÐ

Katy Perry og Orlando Bloom eru meira en bara vinir…

 

“Ploom” er nýjasta stjörnuparið ef marka má fréttamiðla vestanhafs. Katy sem er 31 árs og Orlando sem er 39 hafa nú sést æ oftar saman, nú síðast í rómantískri ferð til Hawaii, norðurströnd Kauai nánar tiltekið.

 

Myndir. etonline.com
Myndir. etonline.com

 

Katy var með tónleika á Grand Waiela Resort á Maui og kom Orlando til að hitta hana. Sjónarvottur sagði í viðtali við ET: “Þau litu út fyrir að vera mjög ástfangin og höfðu ekki augun af hvort öðru. Þeim var alveg sama þó fólk væri að horfa á þau.”

 

Parið gisti í glæsivillu og gerðu margt að sögn sjónarvotta – fóru í fjallgöngu, þyrluferð og út að borða.

ploom2

Þau hafa nú þegar fengið viðurnefnið “Ploom” sbr. “Brangelina” um Brad og Angie.

 

Hvorugt er óvant umtöluðum samböndum en Katy var gift Russell Brand 2010-2012 og var í stormasömu sambandi við John Mayer í nokkur ár. Orlando var giftur súpermódelinu Miranda Kerr frá 201-2013 og eiga þau fimm ára son saman.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!