KVENNABLAÐIÐ

Sturlaðar staðreyndir um Kardashian fjölskylduna

Kris vill bara svartan klósettpappír á sínu heimili: Þetta ásamt fjölda annarra staðreynda hefur komið í ljós í raunveruleikaþáttunum Keeping up with the Kardashians sem flestir vita væntanlega hverjir eru.

Eruð þið tilbúin?

 

  • Kim notar alltaf hárþurrkuna á skartgripina sína áður en hún setur þá á sig.

 

  • Kourtney Kardashian segir að besta ráð sem Kris Jenner (mamma hennar) hafi gefið henni var: „Að vera í samstæðum nærbuxum og brjóstahaldara.“

 

  • Khloé játaði nýlega að eiga kynlífsmyndband með sér og fyrrverandi (Lamar) geymt á öruggum stað.

 

  • Kim klæðist bara bikini á skýjuðum dögum því skært sólarljós „lýsir upp appelsínuhúðina.“

 

  • Kris Jenner fékk hugmynd að raunveruleikaþætti með fjölskyldunni eftir að nokkrir vinir höfðu sagt fjölskylduna vera „klikkaða“ og „skemmtilega.“

kk gif

kk gif 2

  • Ryan Seacrest sendi tökulið í grillveislu til fjölskyldunnar. Tökumaðurinn fullvissaði hann um að efnið væri „golden.“ Þið vitið svo hvað gerðist.

 

  • Kim átti ísskáp alsettan Swarovski kristöllum.

 

  • Kourtney, Kim og Khloé leigðu apa fyrir mömmu sína í nokkra daga því hún „saknaði barnanna af heimilinu.“

 

  • Kris og Khloé bera samskonar tattoo – kross – á sama stað á neðra baki.

 

  • Kourtney klæddist svörtu í fimm ár eftir að foreldrar hennar skildu.

kk3

 

  • Kourtney notaði ekki salernið sitt í tvo mánuði því hún sá þar könguló.

 

  • Talandi um salerni: Kris hefur svartan klósettpappír á öllum salernum.

 

  • Og…Kim opnaði einusinni almenningsklósett í New York við hátíðlega athöfn.

kk1

  • Khloé lenti í bílslysi árið 2001 þar sem hún þeyttist út um framrúðuna. Hún man ekki marga hluti úr æsku og hefur reynt dáleiðslu.

 

  • Korurtney er eina systirin með framhaldsskólapróf.

 

  • Áður en þær urðu frægar áttu Kourtney og Kris barnafatabúð sem hét Smooch. Í raun fékk Kris hugmyndina að þáttunum til að auka vinsældir búðarinnar.

 

  • Áður en nokkur stígur fæti inn á heimili Kris þarf hann að útfylla endalaust magn pappíra þess efnis að þegja eigi um allt sem þar fer fram.

 

  • Eftir að hafa eignast Mason sagði Kourtney að þessi reynsla hefði algerlega breytt lífi sínu: Aðallega þó af því að núna er hún með myndir í símanum af einhverjum öðrum en sjálfri sér….

 

  • Það er bannað að kalla Kris „ömmu.“ Í staðinn kalla barnabörnin, Mason, Penelope, Reign, North og Saint hana „Lovey.“

 

  • Khloé sefur á vinstri hliðinni….því vinur hennar sagði að hægri helmingur andlits hennar væri flatur.

 

  • Kim finnst „verst af öllu í heiminum“ þegar konur bera á sig rangan lit af farða. Henni finnst hún einnig mjög „blessuð“ að elska að láta greiða sér og mála.

 

  • Stærsti ótti Kim: „Að fá slitför eftir barnsburð.“

 

kk sm

kksm2

kk sm3

 

  • Kris og Caitlyn (Bruce) giftu sig aðeins fimm mánuðum eftir að þau hittust

 

  • Kim finnst afar mikilvægt að börn þrói með sér sinn eigin stíl. Hún sagði þegar North var einungis eins árs að hún vildi hvorki bleik föt né mynstruð.

 

  • Kourtney á yfir 30 mismunandi kerrur fyrir börnin sín – eina fyrir hverja uppákomu.

 

  • Kim og Khloé hafa heyrt í mömmu sinni stunda kynlíf. Khloé sagði upplifunina hafa verið „hryllilega.“

 

  • Kris segir að ísskápurinn þeirra eigi við hana samtöl og hann sé gæddur persónuleika.

 

  • Khloé tók spjall við systur sínar í smáatriðum um viðhald kynfæra sinna. Hún segist vera með „línu“ en að Kim sé algerlega ber, fjarlægt með layser… Kourtney er hinsvegar loðin.

 

  • Og….að lokum: Uppáhalds fegrunarráð Kourtney er að bera majónes á vinkonuna – því þá glansar hún sem aldrei fyrr.