KVENNABLAÐIÐ

Kendall gripin á nærbuxunum eldsnemma dags – gleymdi að klæða sig?

Íklædd nærbuxum einum fata, náðist Kendall Jenner á mynd fyrir skömmu síðan – þegar hún yfirgaf húsið tilhöfð snemma morguns, sveipuð léttum jakka og háum hælum, með eldrautt gloss á vörum og án síðbuxna.

3122F53200000578-3444955-image-m-39_1455318063570

Þetta hlýtur að vera martröð allra kvenna, að ganga út á nærbuxunum einum fata í flýti að morgni til, en Kendall kippti sér hins vegar ekkert upp við atvikaskipan, enda um þaulæft atriði úr snyrtivöruauglýsingu fyrir Estee Lauder.

3122F52A00000578-3444955-Exposed_In_real_life_the_model_is_no_stranger_to_stripping_down_-a-79_1455321231742

 

 

Kendall, sem orðin er tvítug og geislar af glæsileika, fer þannig með hlutverk ofurfyrirsætu sem sefur rækilega yfir sig og rýkur upp úr rúminu. Hún er orðin of sein í myndatöku og greiðir þannig á sér hárið í flýti, vindur sér í silkitopp og léttan jakka, smeygir sér í pinnahæla. Því næst er það varaliturinn og út um dyrnar gengur hún, til þess eins að vaða á nærbuxunum einum fata í flasið á hjörð æsifréttaljósmyndara, sem standa árvökulir fyrir framan húsið og festa opinbera niðurlæginguna á filmu.

3122F52A00000578-3444955-Exposed_In_real_life_the_model_is_no_stranger_to_stripping_down_-a-79_1455321231742

Hræðilega pínlegt, ef ekki væri um auglýsingu að ræða og sennilega hafa ófáar konur einmitt fengið martraðir sem snúast um það eitt að standa fáklæddar á almannafæri. En þess vísar auglýsingin einmitt til, að það eina sem nokkur kona þurfi að hafa áhyggjur af, sé að glossið hafi orðið eftir heima.

3122F4FF00000578-3444955-Get_the_look_Kendall_s_favorite_shade_of_the_new_product_is_call-a-31_1455321530401

Yfirborðskennt sem það er, virðist varaliturinn bjarga deginum, eða réttara sagt Pure Color Envy Sculpting varaglossið sem snyrtivörurisinn Estee Lauder kaus að markaðssetja með þessum einkennilega hætti. Hér fer þá Kendall, á nærbuxunum einum fata og vel máluð um varirnar …

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!