KVENNABLAÐIÐ

Hvert er leyndarmálið að unglegu útliti Jennifer Lopez?

Hún er 46 ára og lítur alveg ofsalega vel út, hefur í raun lítið breyst síðan hún var Jenny from the Block.

En hvert er hennar leyndarmál ?

Tracy Anderson er einkaþjálfari Jennifer og hann segir að hennar leyndarmál sé að borða eingöngu hreint fæði, mikið af grænmeti og hún snerti aldrei unninn mat.

„Allt sem hún borðar er lífrænt og er mataræðið hennar mjög vel skipulagt, það er gott jafnvægi milli gæða próteins og næringarríks fæðis,” sagði Anderson í viðtali við People nýlega.

03f7c38cc040139e0e1807ef17a72e

Dagurinn hjá Jennifer byrjar vanalega á próteinhristing og koffeinlausu kaffi. Í hádeginu þá er það grænmetis salat með lax og kvöldverður saman stendur af blönduðu korni, mjög oft quinoa.

„Allt er ferskt,” segir Anderson. „Það er aldrei matur á borðum Jennifer sem er unninn, nema prótein duftið sem hún notar í hristingana sína.”

Þó hún sé mjög ströng er kemur að mataræði þá leyfir Jennifer sér einstöku sinnum að svindla og fá sér eitthvað gott, eins og t.d kartöfluflögur.

PAY-Jennifer-Lopez-abs

Það er tvennt sem hún snertir aldrei og það er koffein og áfengi.

Jennifer æfir þrisvar til fjórum sinnum í viku og hún reynir sitt besta að fá ávallt 7 tíma svefn á nóttu.

Þessi lífsstíll er greinilega að virka fyrir Jennifer Lopez og því … LESA MEIRA: 

heilsutorg

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!