KVENNABLAÐIÐ

Garndokkur um alla stofu? Ekki lengur!

Ég er ein af þeim sem hef virkilega gaman af því að prjóna og hekla. En eins og ég hef nú sagt frá í öðrum pistli, get ég naumast búið til neitt af gagni úr því. Ég kann slétt og brugðið, eina tegund af öldumynstri og nýbúin að læra að hekla dúllu eftir að hafa heklað loftlykkjur í 15 ár. Stofan mín full af garndokkum sem hoppa og skoppa og eru gæludýrunum 5 mikil skemmtun.

Peysur, húfur, vettlingar og heilu ungbarnasettin verð ég að leyfa öðrum prjónurum að eiga heiðurinn af. Mér hefur svo sem tekist að klúðra saman ákaflega einföldum, kassalaga peysum og einlitar húfur eru ekkert agalega mikið vandamál. En ég bið börnin mín um að vinsamlegast ekki segja einum einasta manni hver gerði þetta meistaraverk.

En ég elska garn. Og á mikið af því. Mér þykja líka allskonar lausnir í kringum prjón og hekl mjög skemmtilegar og pæli mikið í þeim. Sjáðu til, ég er hönnuður í eðli mínu sem hefur ekki nokkra einustu þolinmæði til að klára eitthvað dútl, því að í miðju verki er ég komin með hugmynd að einhverju öðru, sem verður að framkvæma, ekki seinna enn strax.

Ég er líka í dásamlegum hópum á Facebook sem kallast Handóðir Prjónarar og Handóðir Heklarar og fylgist þar með listamönnunum sem þar eru á ferð og reyni að soga í míg visku þeirra og fá innblástur frá þeim. Og þar fékk ég hugmyndina um þennan pistil um dokkuhaldara.

garnahaldari 1

Það eru nokkrir sem smíða þessa dokkuhaldara á Íslandi og Handóðir Prjónarar vita hverjir þeir eru ef þig vantar upplýsingar.

garnahaldari 2

Tréskálarnar eru fallegar og ábyggilega hægt að finna einhvern sem getur útbúið svona.

garnahaldari 3

Því miður er erlendi leirlistamaðurinn sem gerði þessa dásemd hættur að selja í bili en það eru til ógrynni af íslenskum meisturum sem gætu rúllað þessu upp og gert sínar eigin útfærslur.

garnahaldari 4

Þessi er í uppáhaldi.

garnahaldari 5

Virkilega sniðug útfærsla með skúffu undir heklunálarnar!

garnahaldari 6

Þetta geta allir gert! Ef þú átt ekki járnhringi til að setja í götin, geturðu pússað brúnirnar með sandpappír eða klætt brúnirnar með límbandi.

garnahaldari 7

Þetta er alveg bráðnauðsynlegt að búa til áður en maður fer í útilegu!! Við hættum ekkert að prjóna þó það komi gott veður og tími til kominn að vera úti.

garnahaldari 8

Þessi er sko sniðug! Ekki henda garnafgöngunum! Klipptu þá niður í nokkra sentimetra lengjur, hrærðu þeim saman við útþynnt trélím, settu plast yfir skál á hvolfi og makaðu garnadrullumallinu yfir. Eftir klukkutíma eða tvo ertu komin með gullfallega og einstaka garnaskál!

garnahaldari 9

Þessa skál keypti ég á Íslandi og er hún ætluð fyrir kínamat. Gatið og hakið í brúninni er ætlað fyrir matprjóna þegar maður leggur þá frá sér.

garnahaldari 10

Þennan teketil keypti ég í Tiger og hann var búinn að sitja uppá eldhússkáp og safna ryki í 15 ár þegar ég fékk þessa snilldarhugmynd. Það þarf bara að passa að það sé ekki sigti fyrir stútnum að innan, þegar velja á ketil til þessarrar notkunar.

garnahaldari 11

Þetta er Pampers-blauttuskubox sem er eins og sniðið fyrir þessa notkun! Og ekki verra ef boxið er málað eða bara heklað eitthvað skrautlegt utan um það. Ég notaði húfu sem var orðin alltof lítil á alla í fjölskyldunni.

Og svo er ákaflega einfalt að skella leirblómapottinum bara á hvolf! Voila! Dokkuhaldari!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!