KVENNABLAÐIÐ

Gullfalleg sjálfsmynd móður: „Svona lítur líkami konu út, sólarhring eftir fæðingu”

Hugrökk, blátt áfram og gullfalleg frásögn ungrar móður sem tók sjálfsmynd nú í gær og deildi á Facebook síðu verslunarinnar Sakura Bloom gengur eins og eldur í sinu á netinu, en ljósmyndin sýnir Ericu Andrews á undirfötum einum með nýfætt barn sitt í fanginu, sólarhring eftir eftir að hún fæddi barnið.

„Svona lítur líkami konu út, sólarhring eftir fæðingu,” segir Erica meðal annars í póstinum, sem hefur verið deilt ríflega 17.000 sinnum og hafa yfir 75.000 Facebook notendur líkað við færsluna sjálfa.  

„Barn í burðarpoka. Hörund við hörund. Fullorðinsbleyja og yndislegur ljómi,” heldur hún einlægri frásögn sinni áfram. „Mér líður eins og ég hafi nýlokið maraþonhlaupi og að hjartað í mér sé enn galopið eftir ferðalag gærdagsins.” Þá segir Erica einnig að þó tómleikatilfinning sitji eftir í maganum sé sál hennar hlaðin af ást í garð nýfædds barns síns, sem er hennar fjórða barn. Ljósmyndina sjálfa hefur ekki verið átt við, einungis hefur myndin verið gerð svart / hvít en eins og sjá má ljómar Erica af sjálfsöryggi þar sem hún horfir beint framan í spegilinn og mundar linsu farsímans með annarri hendi, meðan hún heldur líkama barnsins þétt að eigin líkama með hinni hendinni.  

12438976_10153353545827544_15596632833642308_n

„Að fæða barn í heiminn opnar líkama konu á sama hátt og jarðskálfti rífur upp jarðskorpuna og ég er enn á viðkvæmu, innilegu stigi þeirrar opnunar. Tilfinningar mínar eru óslípapar. Ég er næm og viðkvæm. Öðruvísi. Mér líður eins og ég velti um á síbreytilegu yfirborði ólgjandi meginhafs, sem þeytir mér fram og til baka milli hamingju, þakklætis, þunglyndis og depurðar og sorgar.

Fyrir einungis 23 klukkutímum síðan nærði ég líf innra með mér og fyrir 24 tímum síðan gaus ég og leyfði lífinu að flæða gegnum mig, með útrétta lófana sem biðu í ofvæni. Tómleikatilfinningin í legi mínu kippir mér þunglamalega niður á jörðina, aftur til veruleikans, en einmitt þá tístir þetta litla líf í leit að brjóstinu og mjúku, sefandi ruggi og þá verð ég heil að nýju.

Ég er enn að vinna úr þeirri gullfallegu umbreytingu sem öll fjölskylda mín gekk í gegnum og ég er hugfangin af styrk okkar sem manneskjum, konum og mæðrum. Þessi tímamót eru engu öðru lík.“

Sjálfa stöðuuppfærslu Ericu má sjá og lesa á frummálinu hér að neðan:

„This is what 24 hours postpartum looks like. Baby in sling. Skin to skin. Adult diapers. And a rosy glow. My body feels…

Posted by Sakura Bloom on Tuesday, January 19, 2016

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!