KVENNABLAÐIÐ

Hryllilegt – Ung kona missir niður um sig buxurnar í tívolítæki frá helvíti!

Veltivagn frá helvíti, má sennilega nefna tívolítæki nokkuð sem staðsett er í skemmtigarði á Costa Rica og hefur ollið ófáum slysum undanfarin misseri. Ekki renndi þó marga í grun þar til fyrir fáeinum dögum að tryllitækið gæti afklætt grandalausa gesti og það í miðjum klíðum!

Það var gestur í skemmtigarðinum alræmda sem náði atvikinu á myndband, sem sjá má hér að neðan – en skotið sýnir unga konu sem dauðheldur sér í handrið veltivagnsins alræmda meðan buxurnar hreint út sagt renna niður mjaðmir hennar og niður á mið læri, unnusta hennar – sem er við hlið hennar – eflaust til jafn mikillar skelfingar.

Bölvað tækið ber heitið Tagada og snýst í hringi meðan farþegar reyna að halda jafnvægi með höndunum, en eins og skilja má stóð unga konan frammi fyrir erfiðu vali; að láta buxurnar flakka og ríghalda í handritið eða sleppa hreinlega takinu, grípa í strenginn og hætta á beinbrot víða um líkamann.

5696bf221f00002300215d5b
Hryllingstækið í nærmynd; hér missti unga konan buxurnar

Unnustinn, sem áttar sig fljótlega á hvers kyns er, reynir að smeygja fótlegg yfir ástkonu sína meðan tækið eykur stöðugt hraðann en endar fljótlega ofan á stúlkunni sem er að missa buxurnar og atvikaröð verður sífellt vandræðalegri með hverri sekúndunni.

Myndbandið, sem er hið vandræðalegasta áhorfs – var tekið upp í tveimur hlutum og er seinni hlutinn ekki við hæfi viðkvæmra (lesendur smelli HÉR á eigin ábyrgð) en vandræðalegasta tívolíslys ársins má hins vegar sjá hér:  

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!