KVENNABLAÐIÐ

Bestu leiðirnar til að fá’ða

Aðeins um 30% kvenna fá fullnægingu við samfarir. Ef þú ætlar að fá’ða þá þarf þrennt til. Rétt hugarástand, réttu hreyfingarnar og réttu tólin. Hvort sem þú ert í erfiðleikum með að fá það með bólfélaga þínum eða ef þú vilt fá tíðari og sterkari fullnægingu þá ættu ráð okkar að hjálpa til.

Til þess að komast í rétta stuðið og trúðu mér hugurinn spilar stórt hlutverk í fullnægingu kvenna, þá er sniðugt að stilla hugann rétt áður en þú ferð úr fötunum. Lestu erótískar sögur, horfðu á eitthvað æsandi, erótískar myndir, klámmyndir eða það sem fær þig til að örvast.

jpeg

Fantasíur geta gert heilmikið fyrir þig og auðveldað fullnægingu. Hugsaðu um eitthvað sem gerir þig graða og jafnvel ræddu það við bólfélagann á meðan samförum stendur. Notið ímyndunaraflið og leyfið ykkur að örvast við tilhugsunina um að bjóða einhverjum með ykkur í ástarleik, að þið séuð að njóta ásta á strönd eða hvað það er sem fær þig til að hitna.

Slökktu á símanum og ljósunum ef þér finnst það trufla. Skapaðu rétta stemmningu með tónlist, lykt og kertum. Og fyrst og fremst vertu í núinu!
Mjög gott að vera búin að fara í sturtu og ilma vel. Hreinlæti hefur mikil áhfrif á hvernig fólk nýtur sín í rúminu.

Hættu svo að hugsa um hann. Hvað honum finnst, hvað hann vill og láttu þetta snúast um þig. Þetta snýst um að finna takt þar sem þið komist bæði af stað og þið náið hæstu hæðum.
Láttu hann gæla við snípinn á þér með titrara eða eggi á meðan samförum stendur svo þú fáir sem mest útúr samförunum. Unaðskrem með smá myntu í sem eykur blóðflæðið í snípnum er tilvalið því þú örvast mun fyrr og auðveldara er fyrir þig að fá fullnægingu.

Ekki panikka á leiðinni og telja sjálfri þér trú um að þú munir ekki koma. Þá spennist þú öll upp og málið er sjálfdautt. Að meðaltali tekur það konu 20 mínútur að fá fullnægingu miðað við beina örvun á sníp. Það er eðlilegt að það detti aðeins niður örvunin á milli en þá má ekki missa vonina og panika. Halda áfram og biddu hann að gæla meira við snípinn og önnur kynnæm svæði eins og geirvörtur.

par

Ekki ætlast til af honum að hann láti þig fá fullnægingu án þess að þú aðstoðir hann og notir til þess tól og tæki eða leiðbeinir honum í hvernig hann á að láta þig koma. Hann fæddist ekki með þá þekkingu.

Nuddaðu sjálf snípinn á þér á meðan samförum stendur. Ekki hafa áhyggjur af því að hann verði móðgaður. Flestum karlmönnum finnst það ótrúlega sexí að sjá konu fróa sér.

Ef þú ert ein af þeim heppnu sem ert búin að finna hvernig þú átt best með að fá fullnægingu þá þýðir það ekki að þú getir ekki fengið stærri og stekari fullnægingu. Prófaðu þig áfram með stellingar, fantasíur, tæki og tól og njóttu!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!