KVENNABLAÐIÐ

Svakalegt! – Channing Tatum og Beyoncé RÚLLA upp Lip Sinc Battle!

Harðasta mæm-einvígi aldarinnar fór fram í sjónvarpssal nú í gærkvöldi, þar sem hjartaknúsarinn Channing Tatum háði harða baráttu við eiginkonu sína, sem tætti af sér klæðin og fetaði í fótspor karlstrippara við titillag myndarinnar Magic Mike.

Sjálfur gaf Channing ekki þumlung eftir og flutti þannig lagið Let It Go sem frægt varð í kvikmyndinni Frozen. En kyntröllið lét ekki þar við sitja, heldur smeygði sér í örsmáan gliturgalla, setti upp hárkollu og tók Run The World (Girls) með sjálfri Beyoncé (í bókstaflegri merkingu, já) á sviði.

Channing Tatum brjálast úr gleði við flutning LET IT GO í Lip Sinc Battle – Myndband

Engum bókum er um það að fletta að mæm-einvígið sem flutt var í þættinum Lip Sinc Battle í gærkvöldi er ein æsilegasta viðureign sem komið hefur fyrir augu áhorfenda til þessa og endaði með hnífjöfum stigamun sem leiddi til fyrsta jafnteflis í sögu þáttarins.

Hér má sjá hápunkt þáttarins – dokið við og sjáið HVER stígur fram þegar líða tekur á atriðið! 

VIDEO (HD): Beyoncé y Channing Tatum actuando ‘Run The World (Girls)’ on #LipSyncBattle

Posted by Beyoncé News on Thursday, January 7, 2016

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!