KVENNABLAÐIÐ

Channing Tatum brjálast úr gleði við flutning LET IT GO í Lip Sinc Battle – Myndband

Árið byrjar með æsihvelli. Channig Tatum treður upp þann 7 janúar í þættinum Lip Sink Battle og keppir á móti engum öðrum en … eiginkonu sinni, Jennu Dewan Tatum. Parið kynntist árið 2006 þegar þau fóru með hlutverk á móti hvoru öðru í danssmellinum Step Up og því varla nema von að þau skuli einbeitt mætast á sviði og takast á við í mæm-einvígi aldarinnar. Eða ársins.

Alla vega. Tatum segist vonast til þess að mæm-einvigið muni ekki verða síðasti naglinn í líkkistu hjónabandsins og að einlæg ástin lifi af átökin á sviði. Búið er að taka þáttinn upp og lak upptaka af Channing í hlutverki Elsu í Frozen á netið fyrir sólarhring síðan, en fyrr var vitað að kyntröllið myndi einnig flytja smell sjálfar Beyoncé, Who Run The World (Girls).

Eiginkona Channing mun að öllum líkindum veita flauelskjaftinum, eiginmanni sínum, harða samkeppni í einvíginu þar sem hún bregður sér í hlutverk stóðfola úr kvikmyndinni Magic Mike, en hér … einhverra hluta vegna … má hins vegar sjá Channing Tatum flytja titillag kvikmyndarinnar Frozen – Let It Go.

Þá höfum við séð allt – nema einvígið sjálft, sem sjónvarpað verður þann 7 janúar:  

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!