KVENNABLAÐIÐ

Helen McCrory mætti á opnunarteiti Saatchi galleríisins íklædd FREYDÍS úlpu frá Cintamani

Breska leikkonan Helen McCrory er hugfangin af hlýjum yfirhöfnum frá íslenska útivistarmerkinu CINTAMANI og lét sig þannig ekki muna um að mæta til einkaopnunnar listakonunnar Mounu Rebeiz sem fram fór í Saatchi galleríinu fyrir skemmstu, íklædd íslenskri úlpu sem ber nafnið FREYDÍS og bar stórleikkonan yfirhöfnina með prýði.

Helen-McCrory-Stephen-Jones-tatler-27feb15_400x600
Helen McCrory íklædd FREYDÍSI við opnunartieit í Saatchy galleríinu

Þarlendir fjölmiðlar rýndu í klæðnað Helen og vakti FREYDÍS verðskuldaða lukku, en blaðamaður Tatler segir ástæðu þess að Helen lét yfirhöfnina ekki af hendi meðan á opnunarteitinu stóð vera þá að leikkonan var nýstigin af setti Penny Dreadful.

FREYDÍS frá Cintamani er í sérstöku uppáhaldi hjá Helen McCrory
FREYDÍS frá Cintamani er í sérstöku uppáhaldi hjá Helen McCrory

Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda, en þar fer Helen á kostum í hlutverki vergjarna miðilsins Madame Kali og ber talsvert flókið gervi meðan á tökum stendur, en blaðamaður TATLER leiðir getum að því að Helen hafi ekki gefið sér tíma til að afklæðast gervinu áður en til opnunar Rebeiz kom.

Penny-Dreadful-S1-Helen-McCrory
Hér má sjá Helen í hlutverki seiðandi sjáandans Madam Kali

Þó kemur einnig fram í umfjöllun TATLER að fullt var út að dyrum í Saatchi galleríinu umrætt kvöld, er opnunarteiti Mounu Reibeiz var haldið og því ekki erfitt að ímynda sér að FREYDÍS hafi einfaldlega fallið Helen vel í geð, enda um dásamlega yfirhöfn að ræða.

Til lukku, Cintamani!

Cintamani logo

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!