KVENNABLAÐIÐ

Vopnuð Eyeliner og límbandi – Svona fullkomnarðu línuna!

Ok, við rákumst á þetta í Elle og þetta er snilld. Á myndinni hér að neðan er fallega förðuð kona en það vantar punktinn yfir i-ið, sérstaklega við þennan áberandi varalit.

549baebb43fed_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-2-v-45420632-elv

Þá er það blauti Æ-LÆNERINN … sem gerir herslumuninn og í Elle var kennt þetta frábæra trikk til að gera þetta fullkomið og koma í veg fyrir að maður líti út eins og járnbrautaslys. Allt sem þarf er límband …já límband!

1. Byrjaðu á því að ná þér í límbandsbút ca. þriggja sentimetra langan og líma hann fyrst á hendina á þér. Þetta er gert til að veikja límbandið aðeins til að koma í vef fyrir að það særi viðkvæma húðina í kringum augun.

549baebbab0c2_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-3-v-31286101-elv

2.  Límdu límbandið við neðri augnhárin og láttu það vísa upp að gagnauganu. Varastu að láta límbandið vísa að enda augabrúnarinnar því þá verður Eye-linerinn meira í anda Amy Winehouse sem er stundum flott en ekki markmiðið hér.  Hér er verið að fara klassísku leiðina.

549baebc08791_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-4-v-41076734-elv

3.  Byrjaðu við mitt augnlokið þar sem línan á að vera þykkust og litaðu með ákveðnum strokum. Notaðu litla fingur til að styðja við fyrir öruggar strokur með blauta augnlitnum.

549baebd8b9f8_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-5-v-36714033-elv

4.  Notaðu límbandið sem reglustriku og fylgdu því vel og ekki hafa áhyggjur þótt smávegis smitist á límbandið. Látið línuna þynnast út eftir því sem nær dregur enda hennar.

549baebf1bc85_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-6-v-1971209-elv

5. Fjarlægðu límbandið og líttu á sköpunarverkið.

549baebf6953e_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-7-v-66848947-elv

6. Fullkomið ekki satt?

549baec140e5d_-_elle-beauty-liquid-eyeliner-9-v-15882239-elv

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!