KVENNABLAÐIÐ

YNDISLEG orka á Seyðisfirði: Fleiri LJÓSMYNDIR frá GLEÐIGÖNGUNNI í dag!

Austfirðingar eru skemmtilegt, litríkt og opinskátt fólk. Það sýna ljósmyndir frá Gleðigöngunni sem farin var á Seyðisfirði í dag, en SYKUR birti fyrr í dag stutt viðtal við Snorra Emilsson, ábyrgðarmann Gleðigöngunnar sem hófst á sama tíma og stóra gangan í Reykjavík.

Við það tækifæri birti ritstjórn örfáar en dásamlegar ljósmyndir af Instagram sem sýndu hversu skemmtileg og lifandi Gleðigangan á Austfjörðum var í dag. Ritstjórn lánaðist að koma höndum yfir fleiri svipmyndir frá Gleðigöngunni á Seyðisfirði í dag, sem sýna ljóslega að ekki einungis eru Reykvíkingar hýrir heldur Íslendingar um allt land.

Skemmst er frá því að segja að þátttaka Gleðigöngunnar á Seyðisfirði fór fram úr björtustu vonum skipuleggjenda og þannig gengu 150 manns í nafni ástar og kærleika á Austfjörðum í dag, þrátt fyrir að einungis 50 þáttakendur hafi upphaflega meldað sig gegnum Facebook viðburðasíðu Gleðigöngunnar.

Ritstjórn óskar landsmönnum öllum til hamingju með Hinsegis daga og slær botninn í umfjöllun um Gleðigönguna með þessum litríku, skemmtilegu og gleðiríku skotum frá Seyðisfirði fyrr í dag, en það var Inga Hanna sem sendi ritstjórn SYKUR svipmyndirnar sem má sjá hér að neðan:

img_full_58759

IMG_20150808_151519

IMG_20150808_143615

IMG_20150808_142336

IMG_20150808_141746

IMG_20150808_144258

IMG_20150808_142152

IMG_20150808_135144

IMG_20150808_144255

IMG_20150808_163847

IMG_20150808_161123

Hinsegin Dagar

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!