KVENNABLAÐIÐ

86 ára súpermódel – Hún er ÓTRÚLEGA flott!!!

Elsta starfandi súpermódelið er hin breska 86 ára Daphne Selfe. Við féllum í stafi yfir þessari glæsilegu konu enda ekki skrýtið.
54a8b54b9fe6fbb6084a0b65669aaccf

Hún er tíguleg og leiftrar af lífsþrótti. Hún starfar enn sem módel en ferill hennar spannar tæplega 70 ár eða allt frá því að hún vann módelkeppni þá rétt tuttugu ára gömul.

article-2130239-03DB5D85000005DC-447_306x423

Nýverið kom út bók um ævi hennar „The way we wore“ –A life in clothes.

Aðspurð segist Daphne aldrei hafa farið í andlytslyftingu, aldrei látið sprauta andlit sitt með botox og að smá Ponds (Cold cream) sé eina fegurðarrútínan hennar.

1a763d1ada4ff0a701f233e12c347e8d

Daphne vinnur með helstu tískugúrúum heims svosem eins og Dolce & Gabbana og ferðast oft til Parísar vegna vinnu sinnar en hún er enn að ganga cat-walk á stórum tískusýningum.

daphne_selfe_4937_635x

Hún segist ekki óttast neitt nema það að veikjast og það að verða öðrum byrði.

5513cac64a1b9975257c0b49f75aca9f

Það er sennilega lítil hætta á því þar sem Daphne þrátt fyrir að vera komin nálægt níræðu virðist njóta lífsins af krafti eins og ung manneskja.

1c5f1e37679042db3356ec54cc607478

Daphne er með Instagram síðu og það er virkilega gaman að fylgjast með þessari drottningu þar.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!