KVENNABLAÐIÐ

Chrissy Teigen teflir fram þrýstnum (og kviknöktum) bossa John Legend á Instagram

Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen lætur ekki siðareglur Instagram slá sig út af laginu. Reyndar er Chrissy komin í heilagt stríð sem miðar að því að slá siðgæðisverði samskiptamiðilsins út af laginu, eftir að Instagram lagði blátt bann við geirvörtum stúlkunnar, eins og SYKUR greindi frá í gær.

Svo langt virðist Chrissy reiðubúin að ganga í viðleitni sinni til að sýna fram á fáránleika þess tvöfalda siðgæðis sem ríkir á samskiptamiðlum að hún tefldi út djarfasta trompi hjónabandsins í kjölfar athugasemdar Instagram við geirvörtur hennar, nefnilega þrýstnum bossa látúnsbarkans John Legend, sem er eiginmaður Chrissy.

Hér má sjá glitta í þrýstinn bossa John Legend gegnum linsu Chrissy:

Áfram, Chrissy!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!