KVENNABLAÐIÐ

Ástarstjörnuspá fyrir vikuna 05. – 11. júlí

Stjörnurnar hafa mælt og þetta liggur í kortunum fyrir aðra viku júlímánaðar, meðan sól er hvað hæst á lofti og sumarið er í fullum blóma – rómantíkin blómstrar hjá einhverjum meðan aðrir mega skerpa á hreinskilni og ákveðni. Stattu með eigin löngunum og þrám og hlustaðu á hjartað … þá fer allt vel. 

hrutur

Hrúturinn: 

Þú upplifir þig í sterkara sambandi og nánari heldur en þú hefðir getað ímyndað þér að væri hægt. Hann hefur heillað þig með sínu útliti og stíl en nú sérðu að hann er ekki bara fallegt andlit heldur svo klár og heillandi að þú ert algjörlega ofurseld ástinni. Njóttu þessa tíma.

naut

Nautið: 

Ef þú ert að fara á fyrsta stefnumótið þá getur verið að þú verðir fyrir vonbrigðum og þér finnist það ekki eins spennandi og ástríðufullt og þú vonaðist eftir. Þú ættir kannski að líta betur í kringum þig. Naut í sambandi siglir lygnan sjó.

tvíburi

Tvíburinn: 

Vertu dugleg að fara út á meðal fólks og skemmta þér, því sá eini rétti er þarna úti að leita að þér! Tvíburi í sambandi þarf að hafa svolítið fyrir hlutunum núna og draga maka með út og finna upp á einhverju skemmtilegu til að gera saman.

krabbi

Krabbinn: 

Þú ert búin að spotta út þann sem þú vilt og þú bara getur ekki hætt að brosa. Allt er svo spennandi í dag. Þú geislar ef þú ert í sambandi og svei mér þá ef ykkar samband hefur nokkurn tíma gengið svona vel.

Ljón

Ljónið: 

Þér ætti að vera farið að líða miklu betur, þú öðlast meira sjálfstraust og fyllist trú á eigin tilfinningar. Hvort sem þú ert einhleyp eða í sambandi þá ættir þér að líða þannig núna að þér takist að ná því fram sem þú vilt. Kýldu bara á það!

meyja

Meyjan: 

Þú munt eiga frábæra viku þar sem þú skemmtir þér vel. Ef þú ferð út að djamma þá skemmtir þú þér ekki aðeins vel heldur hittir þú þann sem þú hefur verið að leita að. Finndu kjarkinn og talaðu við hann. Meyja í sambandi mun eiga rómantíska viku og óvissuferð er alveg málið.

vogin

Vogin: 

Þér hefur gengið illa undanfarið að koma skoðunum þínum á framfæri við þann sem þú elskar. Kannski vegna þess að þú ert hrædd við höfnun og það gerir þér erfitt fyrir. En ef þú vilt að hann viti hvernig þér líður í raun þá verður þú að taka fyrsta skrefið og segja eitthvað.

sporðdreki

Sporðdrekinn: 

Alveg sama hvað það er sem er að skapa vandamál á milli þín og þess sem þú elskar, þá mun þér líða mun betur þegar það hefur verið leyst. Keyptu litla gjöf eða farðu með hann út að borða eða í útilegu og komdu þér svo að efninu. Leystu málin!

bogmaður

Bogmaðurinn:  

Það er mikið búið að ganga á undanfarið og nú hefur þú þörf fyrir að vera ein og vinna úr hlutunum. Þú þarft að átta þig á því hvað það er sem þú vilt fá út úr sambandi. Þú þarft að fá þitt svigrúm til að ná áttum og róa þig niður. Þegar það er komið mun allt fara á þann veg sem þú vilt.

steingeit

Steingeitin: 

Það bendir allt til þess að það ert ekki bara þú sem er alvara með sambandið heldur er núverandi eða framtíðar maki þinn sammála. Þegar þið hafið áttað ykkur á þessu þá verða samtöl ykkar innilegri og dýpri og þið njótið hvors annars betur.

vatnsberi

Vatnsberinn: 

Nú er kominn tími til að breyta. Opna þig tilfinningalega og leyfa þér að elska. Það gæti verið að það þurfi að ræða og hreinsa andrúmsloftið og þegar það er búið þá muntu eiga besta tíma lífs þíns. Þú þarft að treysta hinum aðilanum. Hann svíkur þig ekki.

fiskar

Fiskurinn: 

Hlátur er frábær leið til að leysa úr vandamálum og erfiðleikum. Gríptu tækifærið þessa vikuna og gerðu eitthvað sérstakt. Hugsaðu um allt það jákvæða í fari hins aðilans og horfðu á allt það jákvæða í ykkar sambandi. Ef þið hafið glímt við erfiðleika þá er tími til að gleyma og fyrirgefa.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!