KVENNABLAÐIÐ

Pínulitlir bleyjubossar rúlla dansrútínu Beyoncé upp á eldhúsgólfinu

Hvað er betra en að hefja nýjan dag á léttum dansæfingum? Og slettu af melódískri Beyoncé. Henni líka. Það er ekkert betra en örlitlar teygjur í morgunsárið, danstónlist og … glaðlynd börn.

Hér má sjá tvíburana Dayleen og Kayleen taka sporið með dívunni á eldhúsgólfinu heima – 20 mánaða gamla bleyjubossa sem eflaust eiga eftir að sóma sér vel á sviði sem dansarar þegar fram í sækir.

Morgunleikfmi rokkar – og það gerir Beyoncé líka!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!