KVENNABLAÐIÐ

Sumarið er tíminn! Vönduð FjölListanámskeið með fagfólki hefjast 8. júní!

SUMARIÐ ER TÍMINN!
FjölListanámskeið.jpg

Screen Shot 2020-06-02 at 19.12.59

Fjöllistanámskeið: Leikræn tjáning & jóga – Söngtækni – Dans – Myndlist & Útivera! Sýning í lok hvers námskeiðs!

Vönduð námskeið haldin í notalegu umhverfi KristalHofsins, Síðumúla 15, 3. hæð.

Aldur frá 7 ára til 13 ára. Fjöldi takmarkaður og 2 kennarar ásamt aðstoðarkennurum á hverju námskeiði. Veittur er 15% systkinaafsláttur. Neðst má lesa nánar um kennarana.

Sumar_ny2

Screen Shot 2020-06-02 at 19.13.12

Við byrjum 8. júní! Skráning á dancecenter.felog.is! Takmarkaður fjöldi! 

Nánari upplýsingar á dancecenter.is og kristalhofid.is

FjölListanámskeið KristalHofsins eru prýdd fagfólki með áralanga reynslu í barna- og æskulýðsstarfi og kennslu. Unnið til fjölda verðlauna í danskeppnum heima og erlendis og með reynslu úr leikhúsheiminum, afþreyingar- og heilsugeiranum. Nanna Ósk Jónsdóttir, eigandi DanceCenter Reykjavík í KristalHofinu, danskennari og danshöfundur. Jóhanna Karlsdóttir, viðurkenndur jógakennari, Andrea Lapas, danskennari og danshöfundur og Maja Meixin Aceto, dansari, söngkona og píónisti.

Sumar_ny3Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Nönnu Ósk GSM: 777 3658
Nánari upplýsingar á dancecenter.is og kristalhofid.is

Nanna Jóhanna Screen Shot 2020-06-02 at 17.34.22 Andrea2 Screen Shot 2020-06-02 at 17.35.24 Screen Shot 2020-06-02 at 17.40.59

Nánar um kennara:

NannaNanna Ósk fæddist með dansinn og frumkvöðlaeðlið í blóðinu og á unglingsárum vakti hún mikla athygli þegar hún gerði sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistaratitla í einstaklings- og hópadansi í Freestyle keppnum Tónabæjar sem haldin var á vegum ÍTR. Í Verzló var hún einnig fyrirferðamikil í nemendamótunum sem ávalt hafa verið glæsileg og í fyrsta skipti í sögu skólans, voru nemendur ráðnir sem danshöfundar. Jesus Christ Superstar hlaut lof helstu listagagnrýnenda landsins.

Hún býr að því að vera með áralanga reynslu af danskennslu, æskulýðs- & barnastarfi og beitt sér ötulega á því sviði. Hún hefur komið víða við sem danshöfundur, dansari, leikið og sungið í sjónvarpi og leikhúsi m.a. Rocky Horror í leikstjórn Baltasars Kormáks, kvikmynd-unum Maður eins og ég og Strákarnir okkar í leikstjórn Róbert Douglas. Þar tók hún lag Björgvins Halldórssonar “Þó líði ár og öld”.

Nanna kom öllum að óvörum, þar á meðal henni sjálfri þegar hún keppti fyrir Íslands hönd með hópnum Two Tricky með laginu, Angel eða Birta eftir Einar Bárðason í Eurovision. Árið 2007 stofnaði hún DanceCenter RVK á meðgöngu dóttur sinnar og hafa þær mæðgur fylgst að í danslistinni sem hafa átt hug þeirra allan og skólinn nú orðin 13 ára. Starfssemin var útvíkkuð árið 2017 og er dansskólinn staðsettur í KristalHofinu sem einbeitir sér að öllu sem heilar sál og líkama.

Jóhanna

Jóhanna Karlsdóttir lærði að kenna jóga eða nánar tiltekið hot jóga í október árið 2008 hjá Absolute Yoga Academy í Koh Samui, Tælandi og lauk 200 tíma réttindunum viðurkenndum af alþóðlegu jógasamtökunum: Yoga Alliance. Árið 2010 bætti hún við sig og hefur núna 500 tíma kennsluþjálfun frá sömu aðilum. Hún hefur kennt Hot Yoga á Íslandi frá janúar 2009 í fullu starfi. Hún sækir reglulega frekari menntun í yogafræðum erlendis, hefur meðal annars sótt seminar hjá Bikram Choudhury í Barcelona 2010 og sótti síðast einu stærstu jóga ráðstefnu á alþjóðlegum mælikvarða í Rishikesh, Indlandi og var fulltrúi Íslands þar.  Hún hefur mikla ástríðu fyrir faginu og gerir sitt allra besta til þess að miðla þekkingu sinni á sem fagmannlegastan máta til iðkenda.  Megináhersla hennar er að nemendur fái réttar leiðbeiningar og fái upplýsingar um allar útfærslur á æfingunum sem gætu hentað þeim þannig að árangur náist sem bestur.  Jóga er fyrir alla á öllum aldri og af öllum líkamstegundum. Algengasti misskilningur fólks sem ekki þekkir betur er sá að jóga henti betur þeim sem eru liðugir. Jóga hjálpar einmitt þeim sem ekki eru liðugir að liðkast en liðleiki er svo lítill þáttur af jógaiðkuninni sem heild. Jóga er sameining hugar og líkama. Jógaiðkun styrkir okkur líkamlega og andlega. Við náum að styrkja djúpvöðva sem liggja sem næst beinum og liðamótum með aðaláherslu á hrygginn. Við náum einnig að hugleiða og sameina hug og líkama með því að stjórna önduninni í öllum æfingunum. Jóga er frábær iðkun til þess að halda sér í formi líkamlega og andlega og að láta sér líða vel.

Screen Shot 2020-06-02 at 17.34.22Andrea Lapas hefur æft jazzballet og ballet frá unga aldri og steig sín fyrstu skref á atvinnuleiksviði í söngleiknum Billy Elliot í Borgarleikhúsinu, þar sem hún lék eina af balletstelpunum. Andrea tók síðan þátt í uppsetningu Borgarleikhússins á Bláa hnettinum 2016-2018, þar sem hún lék hlutverk eins barnanna á hnettinum. Nú síðast lék Andrea í söngleiknum Matthildi í Borgarleikhúsinu en sá söngleikur kláraðist í febrúar sl. Andrea hefur einnig tekið þátt í fleiri verkum eins og auglýsingum og sjónvarpsþáttum, hún kom m.a. fram í þáttunum um Latabæ og stuttmyndinni Stattu með þér. Síðasta sumar keppti Andrea á Dance World Cup í Portúgal fyrir hönd Chantelle Carey school of performing arts. Dans er helsta áhugamál Andreu og síðustu ár hefur hún sótt fjölda námskeiða í mismunandi dansstílum.

Screen Shot 2020-06-02 at 17.40.59

 Maja Meixin er einstaklega fjölhæf og hefur verið í ýmsum listum frá blautu barnsbeini. Maja kom fram í Blá Hnettinum í Borgarleikhúsinu, Ronju Ræningjadóttir í Þjóðleikhúsinu og We Will Rock You í Háskólabíói. Hún hefur æft söng og er að hefja nám í sönglist hjá FÍH/MÍT og spilar einnig á píanó. Hún keppti með hóp Chantelle Carey og komst áfram með ballett sóló í frjálsum stíl í Dance World Cup. Hún hefur klárað 6 stig hjá JSB og er að æfa stepp og jazz fyrir próf á 3. stigi samkvæmt breskum stöðlum. Hún hefur tekið fjöldan allan af námskeiðum, æft stepp, jazz og söngleikjadans hjá Chantelle Carey og lyrical og ballett hjá Dilly Greasley. Stundað Commercial Jazz og Hip Hop hjá DanceCenter Reykjavík og verið fengin í módelstörf fyrir m.a. markaðsherferð Kringlunnar fyrir fermingar svo eitthvað sé nefnt af hennar fjölmörgu afrekum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!